Ekki á RÚV
15. nóvember 2011, RÚV skrifar:
Sæll og blessaður. Ég er búin að skoða þessa mynd og fannst hún að mörgu leyti áhugaverð. Hins vegar stendur svolítið í mér blandan af því sem gerðist við Alþingishúsið og framhaldið af því og svo pólítisk umræða. Einnig er ýmsilegt athugavert við upptökur. Þannig að mér er það til efs að RUV vilji sýna þessa mynd. En takk fyrir tilboðið.
Kveðja
Sigrún
Ég skrifa:
Sæl vertu,
ég reyni ekki að malda í móinn, enda veit ég að ég slíkt hefur ekki áhrif á ákvörðun stofnunarinnar. Ég skil að pólitíkin standi í einhverjum, enda er myndinni ekki síst ætlað að miðla huglægri sýn þessara níu manns á Ísland. Einhverjir verða sammála sumu, einhverjir engu, en líklega verður enginn sammála öllu því sem sagt er í myndinni, enda koma þau níu úr ólíkum áttum. Þetta veit ég að hefur ekki áhrif á ákvörðun RÚV sem er auðvitað annt um að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana, miðla efni sem höfðar til ólíkra hópa þjóðfélagsins og endurspeglar margbreytileika menningar á Íslandi, lífsviðhorf og lífsskilyrði fólks, flytja efni á sviði lista og fjölbreytt skemmtiefni, veita almenna fræðslu, sýna þætti er snerta málefni lands og þjóðar sérstaklega og með þeim hætti tryggja hlutlæga upplýsingagjöf um íslenskt samfélag, svo ekki sé minnst á að vera vettvangur nýsköpunar í dagskrárgerð, m.a. með kaupum á heimildamyndum.
Hins vegar er ég forvitinn um hvað þér finnst athugavert við upptökur. Faglegur heiður minn er ekki háður því hvort viðfangsefni er umdeilt, heldur nálgun minni á það – sjálfur er ég hreykinn af upptökunum í myndinni og starfi Miriam Fassbender, tökumanns. Ef ýmislegt er athugavert við þær væri gott að vita hvað, til að við getum þá bætt okkur.
Með kveðju,
Haukur Már Helgason.
RÚV skrifar:
Blessaður og sæll. Það er náttúrulega alltaf smekksatriði hvernig myndir eru unnar. Fyrir okkar miðil er hún í hrárri kantinum enda oft erfið skilyrði til töku, sem skýrir það stundum. Lítil lýsing etc. Oft voru líkar frame öðru vísi en við eigum að venjast hér en eins og ég segi þá er þetta alltaf matsatriði hverju sinni. Eins og þú veist eru ríkisstöðvar oft heldur hefðbundnar og efnistök líka, en ég vona að þér gangi vel . Bestu kveðjur
Sigrún
Ég skrifa:
Sæl, Sigrún,
já, þetta er víst matsatriði hverju sinni. Nú er rangt að í myndinni sé lítil lýsing, nema í upphafsatriði hennar, sem er tekið snemma að vetrarmorgni – ég held raunar að það komi flestum áhorfendum á óvart hversu björt hún er, yfirveguð og áferð hennar hreinleg. Frame-in eru vitaskuld önnur en í fréttaefni eða slíku, enda um kvikmyndaverk að ræða. En ég veit að það skilar engu að þræta um slíkt. Ég reyni að sjá til þess að til verði heillegt eintak þegar myndin uppgötvast eftir 20 ár.
Það er samt leiðinlegt að RÚV hafi ekki meiri kjark en þetta. Ég meina ekki bara fyrir mig, heldur fyrir stofnunina, áhorfendur, þetta land.
Með kveðju,
Haukur Már Helgason.
Ég held að það sé ágætt að samskipti við opinberar stofnanir séu gerð opinber. RÚV gerir margt vel og er til dæmis búið að opna nýjan vef sem er þeim gamla fremri á margan hátt. En það er rétt að mörg frame í Ge9n eru öðruvísi en stöðin á að venjast, til dæmis eru viðmælendur hafðir fyrir miðjum ramma í flestum viðtölum. Það er aðeins einn af þeim þáttum sem gætu raskað ró áhorfenda stöðvarinnar.
Myndin fékk annars frábærar viðtökur þeirra sem sáu hana í Bíó Paradís – raunar að frátöldum kvikmyndarýni RÚV sem sagði okkur að setjast aftur við klippiborðið og ávítti Godd fyrir að taka að sér svona hlutverk. Mér hefur sýnst það til siðs hjá gagnrýnendum RÚV frekar en annars staðar að veita listafólki almenn hollráð um lífið og tilveruna í umfjöllun sinni, taka sér stöðu uppalanda. Það er auðvitað jákvætt líka, ég veit ekki hver annar ætti að ala okkur upp. Ég þakka þeim sem horfðu og nutu í kvikmyndasal, myndin verður einhvern tíma gerð aðgengileg einhvers staðar.